Hamingjan!

                                               HAMINGJAN                                                     
Það hefur gefið mér mjög mikið að skrifa þessa pistla og verð ég að viðurkenna að það gerir mig með eindæmum hamingjusama! Af því tilefni ætla ég að skrifa um hamingjuna.
Öll erum við að leita að einhvers konar hamingju í lífinu og að sjálfsögðu er misjafnt hvað gerir okkur hamingjusöm. Það sem mér finnst oft einkenna fólk er að það er að bíða eftir að gera þetta eða klára hitt og þá hefur það tíma til að verða hamingjusamt. Þegar ég hef lést um fimm kíló, þegar ég er búin að kaupa nýja bílinn, klára skólann og ég gæti haldið áfram að telja, þá er hægt að lifa hamingjusömu lífi. Hættu að bíða, bíða eftir að þú klárir þetta eða hitt. Sannleikurinn er sá að það er ekki og verður aldrei til betri tími til að vera hamingjusamur en einmitt núna. Ef ekki núna, hvenær þá? Þú átt ekkert nema augnablikið. Lífið verður alltaf fullt af áskorunum og viðfangsefnum. Það er best að viðurkenna þetta fyrir sjálfum okkur og ákveða að vera hamingjusöm engu að síður, á hverjum degi. Í ágætum texta sem ég las stóð: ? Í langan tíma hafði mér virst sem líf mitt væri í þann mund að hefjast - hið raunverulega líf. En alltaf var einhver hindrun í veginum, eitthvað sem þurfti að eignast fyrst, einhver óútkljáð mál, mig vantaði tíma til að sinna hlutunum og alltaf voru einhverjar ógreiddar skuldir. Þá loks gæti ég byrjað að lifa lífinu. Að lokum rann upp fyrir mér ljós. Þessar ?hindranir? eru líf mitt. Þetta sjónarhorn hjálpar okkur að sjá að það er engin leið til að hamingjunni. Hamingjan er leiðin?. Varðveittu því og lærðu að meta hvert augnablik sem þú átt, því mundu að tíminn bíður ekki eftir neinum! Hamingjan er ferðalag, ekki áfangastaður. Ég fékk sendan svolítið sniðugan tölvupóst um daginn frá kærri vinkonu minni. Í honum var eftirfarandi boðskapur; Það eru allir að leita að hamingjunni, en þeir fara út á við að leita. Þeir leita á það sem glampar, stærra hús, betri bíl, meiri auðæfi. En hamingjuna er ekki að finna þar. Hún er innra með okkur - en þar er dimmt og fólk nennir ekki að leita þar. Það er krefjandi að fara í naflaskoðun, en ég held að ég geti sagt að það komi alltaf til með að skila sér til þín í formi betra lífs. Ef við erum meðvituð um okkur og tilfinningar okkar, þá erum við hæfari til að takast á við lífið. Þannig að kæri lesandi ég ætla að hvetja þig til að líta inná við og sættast við sjálfan þig. Vera hamingjusamur með sjálfan þig alveg eins og þú ert og það líf sem þú átt. Maður getur alltaf á sig blómum bætt og ef þú ert ekki ánægður með það líf sem þú átt, þá er einmitt kominn tími til að líta inná við og skoða hvað þú ert tilbúin að gera til öðlast það líf sem þig langar í. Hamingjan felst ekki í efnislegum gæðum, þú getur fundið hana innra með þér. Megi því hamingjan og gæfan fylgja þér.
 
Kristín Ósk Óskarsdóttir