Þakklæti!

Þakklæti
Í þessari viku ætla ég að fjalla um þakklæti. Það er mikill kraftur sem fylgir því að vera þakklátur að mínu mati og legg ég mig fram við að þakka daglega fyrir allt það yndislega sem líf mitt hefur uppá að bjóða. Í bókinni Leyndarmálið (the Secret) kemur eftirfarandi fram: Það er mikilvægt að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur núna. Þegar þú ferð að hugsa um allt það góða sem ber að þakka fyrir muntu undrast óendanlegt flæði hugsana um allt það sem vert er að þakka fyrir. Þú verður að byrja á að senda frá þér þessar kærleikshugsanir og samkvæmt lögmálinu muntu fá þær endurgoldnar. Þú hefur þannig stillt þig inn á tíðni þakklætis.
Ég man einnig sérstaklega eftir mynd með Bruce Willis og Michelle Pfeiffer sem heitir The story of us. Hún var einn þáttur í að koma mér inná spor þess að vera þakklát. Þau spurðu krakkana sína á hverjum degi hvað væru þeirra ?high point of the day and low point?, sem sagt hápunktur dagsins og lægsti punktur dagsins. Ég útfærði þetta fyrir sjálfa mig og dagbókina mína. Þar skrái ég alltaf hjá mér hápunkt dagsins, ásamt því að telja upp allt það sem ég er þakklát fyrir. Þetta hefur gefið mér mjög mikið. Stundum getur verið mjög erfitt að finna eitthvað til að vera þakklátur fyrir, þá sérstaklega þegar manni líður illa og lífið er erfitt. Ég held meira að segja að ég hljóti að hafa sett einhvers konar met í einu langsóttasta þakklætisefni sem um getur. Á þessum tímabili lá ég hérna inni á sjúkrahúsi. Ég stóð við gluggann, alveg sárlasin og var að leita eftir einhverju til að vera þakklát fyrir. Mér er litið yfir bílastæðið og sé bílinn minn standa þar. Þetta var á þeim tíma þegar bensínverð var í algjöru hámarki! Ég brosti því út í annað og þakkaði fyrir að þurfa ekki að vera keyrandi um og eyða bensíni á meðan. Frekar langsótt, en það virkaði! Seinna meir fann ég líka annað til að vera þakklát fyrir á meðan á sjúkrahúsdvöl minni stóð, en það var þakklæti fyrir allar þessar yndislegu stúlkur og konur sem þarna vinna og hugsuðu svona vel um mig. Það er alltaf hægt að finna EITTHVAÐ til að vera þakklátur fyrir, maður þarf bara stundum að leggja sig fram. Þakklæti er mjög vert umhugsunarefni og hvet ég ykkur til að hugleiða það aðeins meira. ?Heimaverkefnið? ykkar er því að búa til lista yfir allt sem þið getið þakkað fyrir. Það er dásamleg tilfinning að finna fyrir svona miklu þakklæti vegna alls hins góða sem maður hefur í lífinu og held ég að það sé nauðsynlegt að rækta þann þátt meira. Ég veit allavega að ég er óendanlega þakklát fyrir að fá að vera að skrifa þennan pistil, svo mikið er víst! Takk fyrir mig! :) Kristín Ósk Óskarsdóttir