Mikilvægi þess að brosa!

mikilvægi þess að brosa! :)
Máltækið segir; Bros getur dimmu í dagsljós breytt. Þetta eru orð að sönnu að mínu mati. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar ég átti frekar leiðinlegan dag, allt var eitthvað svo erfitt. Á þessum tíma bjó ég í borg óttans, nánar tiltekið í Mosfellsbæ, og er að labba inní verslunarkjarnann í Mosó. Ég mæti þar konu sem brosir þessu líka bjarta brosi til mín, alveg að ástæðulausu. Þessi kona veit ekki enn þann dag í dag að hún bjargaði deginum fyrir mér. Með brosi sínu þá fyllti hún mig af von, sem varð til þess að ég fór að brosa og mætti annarri manneskju sem ég brosti til. Sumt fólk brosir svo fallega að þegar aðrir sjá það líður þeim vel. Þannig að bros getur svo sannarlega virkað keðjuverkandi. Einhvers staðar las ég líka að við myndum nota sautján vöðva til að brosa en þurfum fjörtíu og þrjá til að yggla okkur. Þannig að það er mun auðveldara að brosa, miklu minni áreynsla, brostu því endilega sem oftast.
Ef við getum brosað í daglegu lífi, ef við getum lifað í friðsemd og gleði, njótum við þess ekki ein heldur allir aðrir líka. Með þessu leggjum við grunninn að friði í heiminum (úr bókinni Bros eftir Helen Exley). Þetta er heldur betur flott leið til að leggja sitt af mörkum við að bæta heiminn, smá bros. Móðir Teresa sagði jafnframt að friður myndi byrja með brosi. Þið gerið ykkur því vonandi ljóst hversu miklu þessi fyrirhafnarlausa athöfn getur í raun og veru breytt. Ég ætla að slá botninn í þessi skrif mín með japönsku spakmæli: Hamingjan kemur til þeirra sem brosa!! :) Þannig að kæri lesandi BROSTU!

Kristín Ósk Óskarsdóttir