Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn!

Ég er sannfærður um að í dag ráðum við örlögum okkar, að verkefnið sem okkur hefur verið falið sé okkur ekki um megn; að við munum þola þau áföll og erfiði sem hann ber í skauti sér. Að ef við trúum á okkar eigin málstað og höfum óbugandi sigurvilja munum við ná glæstum árangri.
Winston Churchill
Munkurinn bls: 10
?Vinur minn, ég hef líka gengið þennan veg. Ég hef líka fundið til þess sársauka sem þú lýsir. Samt hef ég komist að því að allt sem gerist hefur tilgang. Ég hef uppgvötvað að öll mistök, persónuleg, í vinnu og jafnvel andleg, eru nauðsynleg fyrir persónulegan þroska. Þau hvetja til vaxtar hið innra og verða að andlegri umbun. Þú skalt aldrei iðrast vegna fortíðarinnar. Taktu henni frekar opnum örmum eins og þeim kennara sem hún er.?
Munkurinn bls: 25
Ég hugsaði með mér að þegar öllu væri á botninn hvolft þá snerist lífið um val.
Munkurinn bls: 27
Draumar mestu draumóramanna verða aldrei uppfylltir, þeir halda áfram að vaxa.
Alfred Lord Whitehed
Munkurinn bls: 35
Hann fór að kunna að meta lífið og sjá hið guðlega í öllum þáttum þess.
Munkurinn bls: 37
En nú hef ég lært að sjálfsstjórn og stöðug umhyggja fyrir líkama sínum, huga og sál er grunnurinn að því að komast í snertingu við æðra sjálfið og láta drauma sína rætast. Hvernig geturðu borið umhyggju fyrir öðrum ef þú berð ekki umhyggju fyrir sjálfum þér? Hvernig geturðu gert eitthvað vel ef þér líður ekki einu sinni vel? Ég get ekki gefið ást ef ég er ekki fær um að elska sjálfa mig, ?bætti hann við.
Munkurinn bls: 37-38
,,Þú skalt ekki vanmeta einfaldleikann.?
Munkurinn bls: 47
Sýn þín verður ekki skýr fyrr en þú getur skoðað hjarta þitt. Sá sem skoðar það utanfrá er draumóramaður, sá sem skoðar inní það vaknar til lífsins.
Munkurinn bls: 48
Flest fólk nýtir hæfileika sína að mjög takmörkuðu leyti í lífinu- hvort sem það er líkamlega, vitsmunalega eða siðferðislega. Við höfum öll miklu fjölbreytilegri möguleika í lífinu en við látum okkur dreyma um.
William James
Munkurinn bls:49
Ef þú sinnir huganum, nærir hann og ræktar eins og frjóan garð, þá verður hann gróðursælli en þú getur gert þér í hugarlund. Ef þú leyfir illgresinu að festa rætur öðlastu aldrei innra jafnvægi og hugarró.
Munkurinn bls: 49
,,Raunar gæta flestir góðir garðyrkjumenn garða sinna eins og stoltir hermenn og passa að enginn mengun komist þar að. Sjáðu síðan allt það eitur sem fólk eys yfir frjóan garð hugans dag hvern: Áhyggjur og kvíði, gremja yfir fortíðinni, áhyggjur af framtíðinni og þessi sjálfskapaði ótti sem leggur innri heim manna í rúst.
Munkurinn bls: 49-50
Áhyggjur eyða orku hugans og fyrr eða síðar skaða þær sálina.
Munkurinn bls: 50
Ef þú ætlar að lifa lífinu til fullnustu verður þú að standa vörð um garðinn þinn og hleypa aðeins allra bestu upplýsingunum að. Þú hefur satt að segja ekki efni á því að opna fyrir neikvæðar hugsanir- ekki eina einustu. Ánægðasta, kraftmest og fullnægðasta fólkið í þessum heimi er ekkert öðruvísi að upplagi en ég og þú. Við erum öll af holdi og blóði. Við sprettum úr sama alheims kjarnanum. En þeir sem gera meira en bara það að vera til, þeir sem hlúa að hæfileikum sínum og kunna að njóta lífsins gera aðra hluti en þeir sem lifa venjulegu lífi. Þeir tileinka sér fyrst og fremst jákvætt viðhorf til lífsins.
Munkurinn bls:50
Við höfum öll valdið til þess að ákveða hvað við hugsum, hvenær sem er.
Munkurinn bls: 52
Það sem aðgreinir fólk sem er hresst of jákvætt frá þeim sem eru ævinlega vansælir er hvernig þeir túlka og bregðast við aðstæðum í lífinu.
Munkurinn bls:52
,,Gjörðir þínar eru mikilvægari en greindarvísitala þín.?
Munkurinn bls:52
Það skiptir engu máli hvað gerist í lífi þínu, þú einn getur ákveðið hvernig þú bregst við því. Þegar þú hefur vanið þig á að leita eftir því jákvæða við allar aðstæður nær líf þitt hæstu hæðum.
Munkurinn bls:53
Allur árangur í lífinu, hvort sem hann er efnislegur eða andlegur byrjar í þessum sex kílóa massa sem hvílir á milli herða þinna.
Munkurinn bls: 53
Það er björt hlið á myrkustu aðstæðum- ef þú hefur kjarkinn til að leita eftir henni.
Munkurinn bls:54
,,Það eru engin mistök í lífinu, bara lærdómur. Það er ekkert til sem heitir neikvæð reynsla, aðeins tækifæri til að vaxa, læra og sækja fram til sjálfsstjórnunnar. Baráttan eflir styrk. Jafnvel sársaukinn getur verið stórkostlegur kennari.?
Munkurinn bls:54
,,Hvernig geturðu þekkt þá gleði að standa uppi á fjallstindi nema þú hafir fyrst ferðast um djúpan dal. Skilurðu hvað ég meina??
Munkurinn bls: 54
,,Já. En ég legg til að þú hættir að dæma alla atburði sem annaðhvort jákvæða eða neikvæða. Þú skalt einfaldlega reyna þá, fagna þeim og læra af þeim. Af hverjum og einum aðburði má draga lærdóm. Þessi lærdómur er drifkraftur innri og ytri vaxtar. Án hans værir þú staðnaður. Hugsaðu bara um þetta í tengslum við þitt eigið líf. Flestir hafa vaxið mesta af stærstu áskorunum lífs síns. Og ef útkoman er ekki sú sem þú bjóst við og veldur þér vonbrigðum þá skaltu muna að náttúrulögmálið tryggir að þegar einar dyr lokast opnast aðrar.?
Munkurinn bls:55
,,Það sem ég er að segja er að til þess að leysa hæfileika huga, líkama og sálar úr læðingi þarftu fyrst að auðga ímyndunaraflið. Allt er skapað tvisvar, fyrst í smiðju hugans og síðan í raunveruleikanum. Ég kalla þetta ,,forsýningu? vegna þess að allt sem þú skapar í ytri heimi þínum byrjar sem forsýning á tjaldi innra með þér. Þegar þú lærir að stjórna hugsunum og setja þér fyrir sjónir allt það sem þú þráir í heimi hér á nokkurra takmarkanna vakna sofandi öfl innra með þér. Þú ferð að opna fyrir raunverulega hæfileika hugans til að skapa það stórkostlega líf sem ég trúi að þú eigir skilið. Frá og með kvöldinu í kvöld skaltu gleyma fortíðinni. Leyfðu þér að láta þig dreyma um að þú sér t annað og meira en samantekt á núverandi aðstæðum þínum. Gerðu ráð fyrir því besta. Afraksturinn mun koma þér í opna skjöldu.?
Munkurinn bls:55
,,Farðu að hugsa um drauma þína til tilbreytingar, eins og þegar þú varst barn.?
Munkurinn bls: 57
,, Ég hef átt drauma og fengið martraðir. Ég vann bug á martröðum með draumum.? Hleyptu í þig kjarki til að dusta rykið af draumum þínum. Vegsamaðu lífið og fagnaðu öllum undrum þess. Hlúðu að orkunni sem býr innra með þér og notaðu hana til að framkvæma. Þegar þú gerir það mun alheimurinn leggja þér lið við að draga fram töfrana í lífi þínu.?
Munkurinn bls:57
Árangurinn hið ytra byrjar hið innra og með því að breyta hugsannagangi sínum.
Munkurinn bls:58
Hugurinn er dásamlegur þjónn en voðalegur húsbóndi.
Munkurinn bls:59
Hugurinn er eins og hver annar vöðvi í líkamanum. Notaðu hann ella hann glatast.
Munkurinn bls:59
,,Takmarkanir þínar eru einungis tilbúningur sjálfsins.?
Munkurinn bls:59
,,Uppljómaðir hugsuðir vita að hugsanir móta veröld þeirra og að gæði lífsins standa og falla með gæðum hugsanna. Ef þú vilt lifa friðsælla og innihaldsríkara lífi verður þú að tileinka þér friðsælar og innihaldsríkar hugsanir.?
Munkurinn bls:59
Sú einfalda staðreynd að þú eigir þér draum eða þrá þýðir að þú hafir getu til að uppfylla það.
Munkurinn bls:61
,,Hafðu það almennilegt eða slepptu því.?
Munkurinn bls:62
,,Það jafnast ekkert á við að byrja smátt.?
Munkurinn bls:62
,,Leyndarmálið á bakvið hamingjuna er einfalt: Finndu hvað það er sem þér finnst skemmtilegast að gera og notaðu alla orkuna í það. Ef þú skoðar hamingjusamasta, heilbrigðasta og ánægðasta fólkið í heiminum muntu sjá að hvert og eitt þeirra hefur fundið köllunina í lífinu sínu og eyðir dögum sínum í að fylgja henni eftir. Þessi köllun er yfirleitt eitthvað sem felur það í sér að þjóna öðrum. Þegar þú ferð að beina andlegri orku þinni að einhverju sem þér er annt um mun lífið blása við þér og allar óskir þínar rætast.?
Munkurinn bls:63
Ástríða þín verður á einhvern hátt að bæta eða þjóna öðrum.
Munkurinn bls:63
,,Velgengnin, eins og hamingjan, er ekki eitthvað sem hægt er að ná í, hún er afleiðing einhvers. Og hún kemur óvænt upp í hendurnar á manni í kjölfar þess að maður gefur sig að verki sem er æðra manni sjálfum.?
Victor Frankl
Munkurinn bls:63
En þú verður samt sem áður að fara að taka áhættu. Hrista svolítið upp í lífi þínu. Losa þig við kóngurlóarvefina. Ganga fáfarinn veg. Flestir lifa innan þægindarmarka sinna. Það besta sem maður getur gert fyrir sjálfan sig er að fara reglulega út fyrir þau. Það er leiðin til að auka hæfni sína og leysa úr læðingi það sem í manni býr.
Munkurinn bls:65-66
Farðu að gera það sem þig hefur alltaf langað til að gera.
Munkurinn bls:66
Ef þú tekur markvissa áhættu færðu það margfalt til baka. Hvernig ætlar þú að komast í þriðjuhöfn ef þú ert með anna fótinn í annarri höfn?
Munkurinn bls:66
,,Þess vegna skaltu gefa þér tíma til að grafast fyrir um raunverulegan tilgang lífs þíns og efla með þér kjark til að fylgja honum eftir.?
Munkurinn bls:66
Mundu að annaðhvort stjórnar þú huganum eða hann þér.
Munkurinn bls:68
Ef þú vilt lifa lífi þínu til fulls verður þú að hlúa að hugsunum þínum eins og þær séu það dýrmætasta sem þú átt.
Munkurinn bls:71
Hugurinn vinnur í gegnum myndir. Myndir hafa áhrif á sjálfsmynd þína og sjálfsmyndin hefur áhrif á það hvernig þér líður, hvernig þú bregst við og hvað þú öðlast.
Munkurinn bls:74
,,ímyndunarafl er mikilvægara en þekking?
Munkurinn bls:74
Þú verður að skilja í eitt skipti fyrir öll að hugur þinn er eins og segull sem laðar til þín allt sem þú þráir í lífinu.
Munkurinn bls: 75
Það skiptir engu hvað aðrir segja um þig. Það sem þú segir við sjálfan þig er almikilvægast.
Munkurinn bls:76
,,Hverri sekúndu sem þú eyðir í að hugsa um drauma annarra hefur þú rænt frá þínum eigin draumum.??
Munkurinn bls:76
Þreyta er að mestu leyti tilbúningur hugans.
Munkurinn bls:76
,,Þeir sem leita munu finna.?
Munkurinn bls:76