Alkemistinn!
Tilvitnanir úr bókinni Alkemistinn eftir Paulo Coelho
Í draumum talar Guð. Þegar hann talar tungu heimsins þá get ég túlkað það. En þegar hann talar tungu síns anda þá getur þú einn numið það.
Alkemistinn bls 24
Þegar maður þarf að vera í samvistum við sama fólkið allar stundir þá verður það að órjúfandi hluta lífs okkar. Og þá vill það fara að breyta manni. Og svo verður það vonsvikið ef við erum ekki eins og það ætlast til. Flestir hafa einhverja ákveðna hugmynd um það hvernig við eigum að hafa lífi okkar.
Og þó hefur fólk sjaldnast hugmynd um hvernig það á að haga sínu eigin lífi.
Alkemistinn, bls26
Örlagakostur: það er það sem þú þráir alltaf að gera. Allir menn vita í frumbernsku hver er þeirra ævikostur. Á því skeiði ævinnar er allt hægt og enginn ótti fælir frá því að láta sig dreyma og þrá allt sem mann langar til að gera um ævi sína. En svo þegar tíminn vindur fram þá koma til skjalanna dularöfl og fara að reyna sýna fram á að það sé ekki vegur að heimta þennan Örlagakost og láta hann rætast.
Alkemistinn, bls 32
Dularöfl: það eru öfl sem virðast illskeytt, en í rauninni eru þau að kenna þér hvernig þú átt að fara að því að heimta þinn Örlagakost. Þau eru að þroska anda þinn og magna þrá þína af því að það ríkir einn djúprættur sannleikur á þessari plánetu: Hver sem þú ert og hvað sem þú gerir, þegar þú þráir eitthvað af alefli þá á sú ósk upptök sín í Alheimssálinni. Það er þá hlutverki þitt á jörðinni.
Alheimssálin nærist á hamingju mannanna. Eða óhamingju, öfund, afbrýði. Að eignast sinn Örlagakost og láta hann rætast er eina skylda mannanna.
Alkemistinn, bls 32-33
Menn læra mjög snemma um tilgang lífsins. Kannski er það þess vegna sem þeir gefa hann líka svo snemma upp á bátinn. En þannig er nú bara heimurinn.
Alkemistinn, bls 34
Ef þú ert að bjóða það sem þú hefur ekki ennþá öðlast þá glatarðu viljanum til þess að öðlast það.
Alkemistinn, bls 34
Allir hlutir í lífinu kosta sitt.
Alkemistinn, bls 35
Þegar allir dagar eru eins þá stafar það af því að fólk er hætt að taka eftir þeim góðu hlutum sem gerast í lífi þeirra meðan sólin siglir um himininn.
Alkemistinn, bls 38
Guð hefur teiknað í heiminum þá leið sem hver maður hlýtur að fylgja. Þú verður bara að kunna að lesa úr því sem hann hefur teiknað handa þér.
Alkemistinn, bls 39
Ef Guð leiðir kindurnar svona vel þá má treysta því að hann leiðir mennina.
Alkemistinn, bls 45
Ég sé heiminn einsog ég vil að hann sé og ekki eins og hann er.
Alkemistinn, bls 49
Um vissa hluti á ekki að spyrja- til þess að flýja ekki sín eigin örlög.
Alkemistinn, bls 50
Hver lítur draumana sína eigin augum.
Alkemistinn, bls 64
Gleymdu aldrei því sem þú þráir.
Alkemistinn, bls 65
Öll sú blessun sem maður þiggur ekki snýst í bölvun.
Alkemistinn, bls 66
Ákvarðanir eru ekki nema upphafið í einhverjum hlut. Þegar einhver tekur ákvörðun er hann í rauninni að stinga sér í kaf í voldugan straumflaum, sem ber mann á stað sem hann hefur aldrei dreymt á ákvörðunarstundinni.
Alkemistinn, bls 78
Enginn ætti að óttast hið ókunnuga, vegna þess að sérhver maður getur öðlast allt sem hann fýsir og þarfnast.
Við óttumst það eitt að geta glatað því sem við eigum, hvort sem það er líf okkar eða það sem við höfum gróðursett. En þessi ótti feykist frá þegar okkur verður ljóst að saga okkar og saga heimsins voru skráðar í sömu hendi.
Alkemistinn, bls 86
Því hvorki lifir fortíð mín né framtíð. Ég á mér bara líðandi stund og hún á hug minn allan og mig varðar ekki um annað. Ef þú gætir ætíð dvalist við líðandi stund þá værirðu gæfumaður. Þá er þér ljóst að í eyðimörkinni felst líf, að á himni geisla stjörnur, og að stríðsmenn berjast af því að það er hlutskipti mannsins. Lífið yrði veisla, mikil hátíð, vegna þess að það er ætíð og aldrei en sú andrá sem við lifum.
Alkemistinn, bls 95
Guð er örlátur að opinbera öllum skepnum sínum leyndardóma sína.
Alkemistinn, bls 99
Þegar maður elskar öðlast allir hlutir meiri merkingu.
Alkemsitinn, bls 113
Vegna þess að framtíðin er í hendi Guðs hendi og hann lætur uppi um hana þegar alveg sérstaklega stendur á.
Alkemistinn, bls 117
Gleymdu framtíðinni og lifðu hvern dag lífsins eftir því sem Lögmálið kennir og í trausti þess að Guð lítur til með börnunum sínum. Hver dagur ber í sér Eilífðina.
Alkemistinn, bls 117
Við elskumst vegna þess að við elskum hvort annað. Það þarf ekki neina réttlætingu á ástina.
Alkemistinn, bls 135
Hugsaðu ekki um það sem þú skilur að baki.
Alkemistinn, bls137
Enginn má flýja sitt hjarta. Því er betra að hlusta eftir því sem það segir. Svo aldrei ríði það högg af sem þú býst ekki við.
Alkemistinn, bls 143
Það sagði honum að sérhver sá maður sem væri sæll væri maður sem bæri Guð hið innra með sér.
Alkemistinn, bls 145
Augun sýna mátt sálarinnar.
Alkemistinn, bls 149
Aldrei að gefa sig á vald örvæntingunni- Þá nærðu ekki að ráðgast við hjarta þitt.
Alkemistinn, bls154
Það er bara eitt sem getur komið í veg fyrir að draumur geti ræst: Óttinn við að mistakast.
Alkemistinn, bls 155
Alla jafnan veldur dauðinn því að menn skynja lífið dýpra.
Alkemistinn, bls 155
Heimurinn er bara sýnilegi hlutinn af Guði.
Alkemistinn, bls 156
En verði Guðs vilji.
Alkemistinn, bls 171
Sama hver á í hlut, sérhver maður á Jörðinni er ætíð í meginhlutverki í Heimssögunni. En sjaldnast veit hann af því sjálfur.
Alkemistinn, bls 177
Hvað stoða mig peningarnir ef ég hlýt að deyja? Sjaldnast hafa peningar skotið nokkrum undan dauðanum.
Alkemistinn, bls 181
