Þú ert þinnar gæfu smiður!

Þú ert þinnar gæfu smiður!


FYRSTA BOÐORÐ GÆFUNNAR

Þú færð engu ráðið um tilviljanakennda heppni. Þess vegna endist hún stutt.

Sanna gæfu skapar maður sér sjálfur. Þess vegna varir hún að eilífu.

ANNAÐ BOÐORÐ GÆFUNNAR

Margir vilja njóta hamingjunnar í lífinu en fáir ákveða að leita hennar.

ÞRIÐJA BOÐORÐ GÆFUNNAR

Hafir þú ekki heppnina með þér gæti ástæðan verið sú að kringumstæðurnar væru þær sömu og þær hafa alltaf verið.

Til þess að öðlast gæfu er nauðsynlegt að skapa nýjar aðstæður.

FJÓRÐA BOÐORÐ GÆFUNNAR

Það að skapa gæfulegar aðstæður felur ekki einungis í sér að hugsa um eigin hag.

Skapir þú aðstæður sem einnig gagnast öðrum verður gæfan þér hliðholl.

FIMMTA BOÐORÐ GÆFUNNAR

Ef þú frestar til morguns að skapa þér réttar aðstæður er óvíst að gæfan berji að dyrum.

Til þess að skapa réttar aðstæður er óhjákvæmilegt að stíga fyrsta skrefið.... gerðu það í dag!

SJÖTTA BOÐORÐ GÆFUNNAR

Jafnvel þegar allar aðstæður virðast hagstæðar er óvíst hvort þú nærð að freista gæfunnar.

Leitaðu í smáatriðum að því sem virðist ónauðsynlegt... en er í raun ómissandi.

SJÖUNDA BOÐORÐ GÆFUNNAR

Þeir sem trúa einungis á heppni sjá engan tilgang í því að hafa áhrif á kringumstæðurnar.

Þeir sem leggja sig fram við að skapa réttar aðstæður hafa ekki áhyggjur af því hvort þeir verið heppnir.

ÁTTUNDA BOÐORÐ GÆFUNNAR

Enginn getur selt gæfuna. Gæfan er ekki til sölu.

Treystu ekki sölumönnum gæfunnar.

NÍUNDA BOÐORÐ GÆFUNNAR

Þegar þú hefur skapað heppilegar aðstæður skaltu sýna þolinmæði- ekki gefast upp.

Trúðu á árangur.... þá mun gæfan falla þér í skaut.

TÍUNDA BOÐORÐI GÆFUNNAR

Viljir þú láta lánið leika við þig þarftu að skapa heppileg skilyrði.

Tækifærin snúast ekki um heppni eða tilviljanir:Þær eru alltaf til staðar!

Þess vegna getur þú orðið þinnar gæfu smiður með því að skapa þér réttu aðstæðurnar!

KJARNI MÁLSINS

Gæfan verður að veruleika ef sköpuð eru rétt skilyrði fyrir hana.

NÝ UPPSPRETTA GÆFUNNAR

Ef gæfan er háð því að sköpuð séu rétt skilyrði fyrir hana..... veltur gæfan eingöngu á þér!

Frá og með deginum í dag getur þú orðið þinnar eigin gæfu smiður!