Fita
Fita:
Fitur eru mikilvægur þáttur í fæðu okkar. Þær koma á eftir próteinum í forgangsröð. Þær eru auðfundnar í kjötmeti og mjólkurafurðum, en öll fæða inniheldur eitthvað magn af fitu. Besta leiðin til að fá góðar fitur og olíur er að neyta mikið af hnetum og fræjum, ólífum, sojabaunum og kaldpressuðum jurtaolíum. Þessar afurðir innihalda nauðsynlegar fitusýrur sem við þörfnumst.
Hlutverk fitunnar í líkamanum er að einangra og skaffa orku. Hún er líka mikilvæg í upptöku fituleysanlegra vitamína, mikilvægur þáttur í frumuhimnunni ásamt því að vernda innri líffæri okkar fyrir áverkum og hitabreytingum, Einnig hjálpar hún til við að halda líkamshita jöfnum.
Mikilvægur þáttur fitunnar eru fitusýrurnar. Þrjár fitusýrur eru líkamanum lífsnauðsýnlegar og verðum við að fá þær úr fæðunni þar sem líkaminn getur ekki búið þær til. Þetta eru omega 3, 6 og 9. Ef líkaminn hefur mikið magn af omega 6 þá getur hann framleitt omega 9. Við þurfum að jafnaði helmingi meira af omega 6 en omega 3. Omega 3 er að finna í olíum ss hörfræolíu, kanólaolíu, sojaolíu, og lýsi. Omega 6 er að finna í flestum jurtarolíum, Omega 9 er í Olífuolíu.
Lífsnauðsýnlegar (essential) fitusýrur gegna mikilvægu hlutverki í vexti og viðhaldi líkamans. Sérstaklega hvað varðar æðakerfi, taugakerfi og til að viðhalda teygjanleika og mýktar húðar. Fitusýrurnar halda líka stoðkerfi líkamans smurðu.
Unnar jurtafitur:
Allar unnar fitur eru mjög skaðlegar fyrir líkamann. Þar má nefna smjörlíki, létt og laggott, smjörva og þess háttar. Þessar afurðir innihalda olíur og fitur sem hafa verið hitaðar mjög mikið og hafa því skaðast , misst sitt upprunalega form. Þar með þekkir líkaminn þær ekki og veit ekki hvað hann á ða gera við þær. Þær eru því geymdar í líkamanum, safnast upp og geta með tíð og tíma valdið vandamálum. Það er mesti misskilningur að þessar fitur séu gagnlegar í þeim tilfellum sem um hjarta- og æðasjúkdóma er að ræða. Í öllum tilfellum ætti að sniðganga þessar unnu afurðir. Einnig ætti einungis að neyta kaldpressaðra olía en ekki hitaðra og hreinsaðra þar sem þær hafa misst mikið af gæðum sínum í ferlinu.
