Steinefnið Fosfór

Steinefnið Fosfór
Fosfór er helst að finna í beinum og tönnum en þetta steinefni er um 1% líkamans - þar af um 80-90% í beinum og tönnum. Fosfór er nauðsynlegt fyrir myndun beina og tanna, frumuvöxt, samdrátt hjartavöðva og heilbrigða nýrnastarfsemi. Fosfór á þátt í heilbrigði tauga og eðlilegri starfsemi hugans. Það hjálpar líkamanum við nýtingu vitamína úr fæðu og umbreytingu fæðunnar í orku. Skortur á fosfót er fátíður þar sem það er að finna víða í fæðunni. Einkenni skorts eru þreyta, beinverkir, kvíði, minnkuð matarlyst, slappleiki, dofi, skjálfti, beinkröm, einbeitingarleysi, minnkuð kyngeta og ígerð í tannvegi. Fosfór er að finna í kjöti, fiski, eggjum, heilkorni, grænmeti, mjólkurafurðum, þurrkuðum ávöxtum, hnetum, fræi og gosdrykkjum með kolsýru. Sýrubindandi lyf, umframmagn af járni, ál og magníum eru gagnvirk fosfór. Mikilvægt er að hver og einn passi gosdrykkjarnotkun sína því að gosdrykkir með kolsýru innihalda fosfór en mikil neysla gosdrykkja getur raskað því jafnvægi sem þarf að vera milli fosfórs, kalks og magnesíum en nauðsynlegt er að þessi steinefni séu í réttu hlutfalli í líkamanum