Lífræn ræktun

Lífræn ræktun
Lífræn ræktun er það form ræktunar þar sem hvorki eru notuð eiturefni né tilbúinn áburður. Afurðir lífrænnar ræktunar innihalda meira af næringarefnum s.s. vitamínum og steinefnum og ættu ekki að innihalda nein eiturefni sem eru skaðleg fyrir líkamann. Í lífrænni ræktun er hugsað um að jarðvegurinn verði ekki snauður af næringarefnum svo að plönturnar fái það sem þarf. Það eru td notaður húsdýraáburður og skiptirækt er stunduð þar sem sumar plöntur taka upp meira af ákveðnum efnum en aðrar úr jarðveginum. Þá er sáð á víxl til að koma í veg fyrir að jarðvegurinn verði snauður af þessum efnum.
Við notkun á húsdýraáburði fá plönturnar ekki bara steinefni sem hraða vexti heldur líka önnur sem styrkja plöntuna og gera hana betur fallna til að berjast gegn sýkingum. Plantan verður sterkbyggðari og heilbrigðari fyrir vikið og þar með fáum við betri afurð og mun meira af næringarefnum. Ef tilbúinn áburður er notaður vex plantan mun hraðar en jafnframt veikbyggðari og gefur af sér næringasnauðari afurðir.