A Vitamín
A ? Vitamín
A-vitamín er fituleysanlegt vitamín. Helstu gerðir A-vitamíns eru virku efnin retínól og Beta-karótín. A-vítamín er mikilvægt fyrir allan frumuvöxt. Það stuðlar að heilbrigðri sjón, er nauðsynlegt fyrir húð, slímhúð, bein og tennur og dregur úr hættu á krabbameini. A-vítamínskortur kemur fyrst fram í náttblindu, þurri slímhúð og aukinni sýkingarhættu. Sé A-vitamín tekið í of stórum skömmtum safnast það fyrir í líkamanum og getur retínól valdið eitrun en líkaminn stjórnar umbreytingu á beta-karótín yfir í A-vitamín eftir þörfum. Retínól er aðeins að finna í dýraríkinu en mest er af því í lýsi, lifur, eggjum, og mjólkurafurðum. Beta-karótín er aðeins í ávöxtum og grænmeti og þá helst í grænu og gulu grænmeti s.s. spínati, gulrótum, næpum, fíflablöðum, myntu, steinselju, apríkósum og melónu.