Bíótín

Bíótín

Bíótín er vatnsleysanlegt vítamín sem myndast m.a. í þörmum en einnig fæst það úr fæðunni. Bíótín hefur verið kallað ýmsum nöfnum s.s. B7-vítamín, H-vítamín, kóensím-R, bios, bios П og protective factor X. Ástæðan fyrir öllum þessum nöfnum er sú að efnasambandið var einangrað í mismunandi löndum á tiltölulega skömmum tíma og hver hópur vísindamanna gaf efninu sitt heiti. Bítótín hefur áhrif á heilbrigði hárs, hárvöxt og hárlos. Það getur dregið úr gránun hárs og skallamyndun. Skortur á Bíótíni þekkist varla nema þá hjá þeim sem borða að meðaltali 20 hrá egg á dag í nokkurn tíma en í þeim tilfellum binst bíótínið þannig að það getur ekki frásogast. Bíótín er helst að finna í innmat, s.s. nýrum og lifur, sveppum, bönunum, haframjöli og sojabaunum.