B1 - Vitamín
B1-vítamín
B1-vítamín eða tíamín eins og það er kallað er vatnsleysanlegt vitamín líkt og önnur B-vítamín, svo að umframmagn skilst auðveldlega úr líkamanum, jafnvel þó að mjög stórir skammtar séu notaðir í lengri tíma. B1-vítamín er nauðsynlegt fyrir heilbrigða starfsemi taugakerfis og efnaskipti kolvetna og jafnframt fyrir starfsemi meltingarfæranna og hjartans. Það tekur þátt í mikilvægum efnaskiptum í taugavef, í hjartanu, við myndun rauðra blóðkorna og efnaskiptum sem tengjast viðhaldi vöðva. B1-vitamín gagnast við ákveðninni tegund blóðleysis. Beri-beri sjúkdómur er afleiðing af skorti á B1-vítamíni en hann truflar starfsemi hjarta og tauga. Skortseinkenni lýsa sér í þreytu, einbeitingarskorti, og lystarleysi en skortur á B1-vítamíni getur leitt til truflunar í taugakerfi, meltingarkerfi og hjarta- og æðakerfi. Sum hjartaáföll stafa af svæðisbundnum B1-vítaminskorti í hjartanu. B1-vítamín er að finna í flestum próteinríkum fæðutegundum en þær fæðutegundir sem eru auðugastar af því er kjötmeti, t.d. svínakjöt, hjörtu og lifur. Einner er töluvert af B1-vítamíni í ölgeri, hveitikími, klíði, heilu hveiti, heilum höfrum, hýðishrísgrjónum, hnetum og fræjum, sojabaunum, mjólk og mjólkurafurðum, laufmiklu grænmeti, kartöflum og rófum. B1-vítamín þolir ekki suðu.