B6-vitamín

B6-vítamín eða pýridoxin, sem er samheiti þriggja efnasambanda: pýridoxin, pýridoxal og pýridoxamín, er vatnsleysanlegt eins og önnur B-vítamín og umframmagn í líkamanum skilst út úm nýru. B6-vítamín er mikilvægt í líkamanum og t.d. þarfnast yfir 60 ensím B6-vítamíns svo þau geti starfað eðlilega.B6-vítamín styrkir ónæmiskerfið og getur verið krampastillandi og varnað taugaskemmdum. Nægilegt magn af B6 í líkamanum getur dregið úr hættu á húðsjúkdómum og getur t.d. gagnast gegn gelgjubólum. B6-vítamín er mikilvægt fyrir myndun líkamans á adrenalíni og serótóníni. Skortur á Serótóníni er oft tengdur þunglyndi og öðrum skapbreytingum. Tíðaþrautir geta t.d. orsakast af slíkum skorti , enda sýna margar rannsóknir fram á gagnsemi B6-vítamíns gegn tíðaþrautum. Einnig má benda á að B6-vítamín gagnast konum á breytingarskeiðinu. Einkenni á skorti á B6-vítamíni eru m.a. blóleysi, húðbreytingar, geðdeyfð, nýrnasteinar, uppköst, aukin sýkingarhætta, ofþreyta, tannskemmdir, beináta og bólgur í taugum. B6-vítamín er að finna í flestum fæðutegundum en helstu uppsprettur eru fiskur, t.d. lax og silungur, kjöt, kjúklingur, egg og gulrætur.