B12-Vitamin

B12-vítamín eða kóbalmín er vatnsleysanlegt vítamín eins og önnur B-vítamín. B12-vítamín, ásamt járni og fólinsýru, er nauðsynlegt fyrir eðlilega blóðmyndun. B12-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í viðhaldi taugakerfis, þar með talið fruma til heilans. Einnig er það nauðsynlegt fyrir heilbrigðan vöxt, húð og slímhúð. Skortur á B12-vítamíni kemur fram í truflun á blóðmyndun sem getur leitt til blóðleysis. Áhrif fækkunar rauðra blauðkorna koma fram í aukinni þreytu og fækkun hvítra blóðkorna leiðir til meiri sýkingarhættu. Skortur á B12-vítamíni hefur áhrif á hrörnun taugafrumna sem getur komið fram í heila, mænu og úttaugakerfi sem leiðir til skerðingar á hreyfigetu, minnistaps, sjóntruflana, ruglaðrar hugsanar, ofskynjunar og rangskynjunar. Margar taugaskemmdir vegna skorts á B12-vítamíni eru varanlegar. B12-vítamín er helst að finna í mögru kjöti, kjúklingum, fiski, mjólk og eggjum. Þeir sem borða eingöngu grænmeti þurfa að gefa þessu vítamíni sérstakan gaum þar sem kóbalmínskortur getur haft mjög akvarkegar afleiðingar. Um helmingur B12-vítamíns tapast við suðu.