Inósítól

Inósítól telst til B-vítamína og er vatnsleysanlegt. Ekki finnst jafn mikið af neinu fjörefni í líkamanum og inósítóli, fyrir utan níasín, en líkaminn getur framleitt inósítól í meltingarfærunum. Inósítól vinnur með kólíni við niðurbrot og vinnslu fitu og kólestróls.Inósítól er að finna í himnu frumna og er mikilvægur þáttur í viðbragði þeirra við áreiti, taugaboðum og stjórnun starfsemi ensíma. Talið er að það geti dregið úr kvíða og svefnleysi. Inósítól getur dregið úr hárlosi og talið er að það geti komið í veg fyrir exem. Fæðutegundir sem eru auðugar af inósítóli eru sítrusávextir, grænmeti, hnetur, baunir, hýðishrísgrjón, ölger, melassi og hveitikím. Einnig er það að finna í innmat svo sem hjörtum, lifur og nýrum, sérstaklega hjá nautgripum.