Mikilvægi sjálfstraust

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá ykkur sem lesið pistlana mína að ég hef mjög mikinn áhuga á öllu því sem viðkemur því að auðga andann, auka þroska minn og út frá því að verða betri manneskja. Í þessum pistli ætla ég að fjalla um mikilvægi sjálfstrausts. Í því samhengi mun ég jafnframt útskýra orð eins og; sjálfsöryggi, sjálfsmynd, sjálfsálit og sjálfsmat. />

Það er mikilvægt að stuðla að sjálfstrausti strax í barnæsku. Sjái foreldrar til þess að börnin öðlist lífsreynslu sem eflir þeim sjálfstraust smám saman eru þeir sennilega að veita þeim stuðning sem þau búa að alla ævi. Þau börn sem eru með ákveðna tilfinningalega hæfni eru betur í stakk búin til að takast á við lífið (úr bókinni Tilfinningagreind eftir Daniel Goleman). Sjálfsmynd okkar getur verið í góðu samræmi við raunveruleikann, í hrópandi ósamræmi og allt þar á milli. Hugmyndirnar um hver ég er og hvað ég get hafa mikil áhrif á líðan og hegðun. Ég var með frekar sterka sjálfsmynd þegar ég var yngri og skilaði það sér í miklu sjálfstæði. Foreldrum mínum nánast ofbauð oft og tíðum yfir þeim hlutum sem ég taldi mig geta. Ég tel þetta samt sem áður hafa mótað mig mikið og gert mig sterkari. />

Því sjálfsöruggari sem við erum því mun betur erum við í stakk búin til að takast á við mótlæti í lífinu, því sveigjanlegri sem við erum, því meira mótstöðuafl höfum við gegn örvæntingu eða uppgjöf. Því sjálfsöruggari sem við erum þeim mun líklegri erum við að vera gefandi fremur en letjandi í tengslum við annað fólk, vegna þess að líkur sækir líkan heim. Góð heilsa laðar að sér góða heilsu og lífsþróttur og opinn hugur hefur meira aðdráttarafl en tómleiki og vanmáttur (úr bókinni Betra sjálfsmat - Lykillinn að lífshamingju eftir Nathaniel Branden). />

Að mínu mati er gott sjálfsmat einn af hornsteinunum að hamingjuríku lífi. Það eykur líkurnar á að manneskja taki virka afstöðu til lífsins og axli ábyrgðina á hamingju sinni. Gott sjálfsálit gerir okkur betur í stakk búin, bæði til að nýta tækifærin sem lífið hefur uppá að bjóða og til að takast á við vonbrigði þess og áföll. Ákveðnir hlutir á minni stuttu ævi hafa gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Ég gekk í gegnum tímabil þar sem sjálfsálitið var í algjöru lágmarki og mér fannst ég einskis nýt. Á þeim tímapunkti tók við mikil naflaskoðun sem leiddi af sér aukna meðvitund um sjálfa mig. Þegar ég hafði öðlast þessa meðvitund gat ég loksins markvisst farið að byggja mig upp og þar af leiðandi óx sjálfstraustið. Ég ætla að sleppa því að ljúga að ykkur, þetta var oft frekar strembið, en í dag stend ég uppi sem sterkari manneskja í alla staði og sé síður en svo eftir þessari vinnu. Ég veit hverjir styrkleikarnir mínir eru og hvar veikleikarnir mínir liggja og það eitt er ómetanlegt. Í gegnum veikindin mín þá hef ég stundum farið niður í djúpa dali þar sem sjálfsefinn ræður ríkjum. En út frá því að vera meðvituð um sjálfa mig þá dvel ég styttra og styttra við í þessum dimmu dölum. />

Ég ætla að enda pistilinn á orðum Önnu Valdimarsdóttur; ?Heilbrigt sjálfsálit felst í því að vera sáttur við sjálfan sig án þess að sofna á verðinum við að bæta sig. Glíman við okkur sjálf tekur aldrei enda?. Þangað til næst munið að vera góð við náungann og umfram allt, munið að vera góð við YKKUR SJÁLF! :) /