Hrós
Hrós
Alltaf dettur maður inná eitthvað nýtt!
Á þessari tækniöld sem við lifum á þá er hægt að finna gott efni á ótrúlegustu stöðum. Ég lenti inná frábærri heimasíðu um daginn þar sem ég fann skrif um svipað efni og ég hef verið að fjalla um. Þetta var síðan hjá honum Loga Geirssyni og fékk ég góðfúslegt leyfi hans til að notast við nokkra punkta í skrifum hans um hrós. Ég mæli því með síðu peyjans www.logi-geirsson.de/. Ég ætla í þessum pistli að skrifa um mikilvægi þess að hrósa öðrum og hversu mikið það getur gert fyrir þann hinn sama. Styðst ég nánast alfarið við punkta Loga í pistlinum.
Að hrósa einstaklingi er ein öflugasta leið til framfara og árangurs sem til er í veröldinni. Hugurinn, sjálfstraust, sjálfsímynd, ásamt öðrum og fleiri mikilvægum þáttum einstaklingssins mótast af þessu litla orði HRÓS. Hefur þú prófað að hrósa einhverjum nýlega? Ef ekki, prófaðu það, og sjáðu breytingarnar og vellíðunina sem kemur yfir viðkomandi.
Við þekkjum öll hversu mikilvægt það er að fá hrós og hvatningu frá þeim sem við tökum mark á. Yfirmenn á vinnustöðum ættu að vera ósparir á að hrósa starfsmönnum sínum, sem eiga það skilið, því það skilar sér í ánægðari starfsmanni sem er reiðubúinn að leggja enn meira á sig en áður. Foreldrar ættu einnig að vera duglegir að hrósa börnum sínum og hvetja þau áfram því þannig styrkja þau sjálfsmynd þeirra. Vinir geta einnig gefið hverjir öðrum mikið með hrósi. Hrós og hvatning eru mjög uppbyggjandi fyrir samskipti og með því drögum við úr afbrýðisemi og öfund sem brjóta niður og eyðileggja. Það er sama hversu gömul við verðum, öll höfum við þörf fyrir að finna að verk okkar séu metin að verðleikum. Ein besta aðferðin til að mynda styrk tengsl við persónu er að sýna í verki að við kunnum að meta það sem hún gerir vel.
Hrósið er í hnotskurn einhver öflugasta stjórnunaraðferð sem til er. Hrósið hefur stundum verið nefnt "vítamín sálarinnar" eða H-vítamín (H stendur fyrir HRÓS). Það góða við þetta "vítamín" er að það fæst ókeypis og virkar fljótt og örugglega bæði á gefanda og viðtakanda. H-vítamínið er sá orkugjafi sem knýr áfram jákvæð mannleg samskipti. Án H-vítamíns verðum við döpur, leið og leiðinleg. Gerðu samt eitt, hrósaðu af heilum hug og með glaðlegu yfirbragði, sýndu með hegðun þinni að þú sért ánægð/ur og viljir sína það í verki. Spurðu sjálfan þig einnig eftirfarandi spurninga:
Hvenær hrósaðir þú einhverjum síðast?
Hefur þú fengið hrós nýlega?
Er hrós mikið eða lítið notað í þínu umhverfi?
Mættir þú gera meira af því að hrósa?
Hvenær á maður að hrósa? Það er alger óþarfi að spara hrósin, gerðu það við minnsta tilefni! Tilefnið þarf alls ekki að vera stórt, heldur þessi litlu smáatriði sem gleðja sálina; Mikið líturu vel út, varstu í klippingu, gaman að sjá hvað þér gengur vel, maður getur í rauninni alltaf fundið eitthvað.
