Að gera sitt besta

Að gera sitt besta
Uppá síðkastið hef ég mikið verið að velta hugtakinu ?að gera sitt besta? fyrir mér. Ég datt inná frábæra bók um daginn sem heitir Lífsreglurnar fjórar. Bókin er byggð á fornri visku Tolteka-indjána og setur höfundurinn, Don Miguel Ruiz, efnið fram á frekar einfaldan en fræðandi máta. Mun ég því mikið styðjast við efni bókarinnar í þessum pistli.

?Undir hvaða kringumstæðum sem er, gerðu alltaf þitt besta, ekki meira og ekki minna. En hafðu í huga að þitt besta mun aldrei verða eins frá einu andartaki til annars. Þegar þú ert heill heilsu mun þitt besta vera öðruvísi en þegar þú ert veikur. Ef þú reynir að gera betur en þitt besta þá muntu eyða meiri orku en þörf var á og á endanum mun þitt besta ekki vera nóg. Þegar þú ofgerir þér þá tæmirðu batteríin og ferð að vinna gegn sjálfum þér og þess vegna mun það taka þig lengri tíma að ná markmiðum þínum?. Ég tengi mig mikið við þetta. Eins og ég hef sagt ykkur áður þá er ég mjög markmiðsmiðuð og einnig mætti segja að ég væri í metnaðarfyllri kantinum! Út frá þessum persónueinkennum þá stend ég sjálfa mig stundum að því að vera að setja óraunhæfar kröfur á sjálfa mig. Þegar ég set sjálfa mig í þær aðstæður þá spyr ég sjálfa mig einfaldrar spurningar; ?Myndi ég setja þessar sömu kröfur á besta vin minn/vinkonu??. Svarið er nánast undantekningalaust NEI!

?Gerðu bara þitt besta - undir öllum kringumstæðum. Það skiptir ekki máli hvort þú sért þreyttur eða veikur, ef þú gerir alltaf þitt besta þá er ómögulegt fyrir þig að ásaka sjálfa/n þig?. Í gegnum veikindin sem hafa reynst mér frekar erfið uppá síðkastið, þá hefur sjálfsásökunin farið einna verst með mig. Ég er þó búin að taka mig töluvert á í þessum efnum. Hvern einasta dag þá legg ég mig fram við að gera mitt allra besta og get því farið sátt að sofa.  

?Ef þú gerir þitt besta mun það færa þér hamingju, öllum stundum. Þegar þú gerir þitt besta ánægjunnar vegna, ertu að framkvæma því þú nýtur þess sem þú ert að gera. Að framkvæma er að lifa innihaldsríku lífi. Gott dæmi um þetta er að finna í kvikmyndinni Forrest Gump?. Hugmyndir Forrest Gump voru kannski ekki stórkostlegar en hann framkvæmdi þær. Hamingja hans fólst í því að hann gerði alltaf sitt besta. Hann hlaut veglega umbun án þess að vænta hennar. Boðskapurinn í þessari mynd var einstakur! 

?Ef þú gerir þitt besta í leit þinni að persónulegu frelsi, í leitinni að sjálfsást, muntu uppgötva að það er aðeins tímaspursmál að þú finnir það sem þú leitar að?. Við erum öll að leita að einhverju í lífinu, þótt aðalspursmálið sé í raun að komast að því hver VIÐ erum? Sú leit er oft mikið vandaverk, því við þurfum að komast að því hvaða lífsreglum og lífsgildum við viljum lifa eftir. Það sem er þó mikilvægt að gera sér grein fyrir er að við erum öll mannleg og okkur ber að virða þá manneskju sem við erum. Á meðan við erum að leggja okkur af alúð fram við að gera okkar besta, þá skiptir það ÖLLU!

Mig langar að enda pistilinn á einni góðri setningu; ?Dagurinn í dag er upphafið að nýjum draumi?. Þessi hugsýn hefur virkilega haldið mér gangandi. Eftir erfiðan dag, jafnvel með miklum kvölum, þá jafnast ekkert á við þá tilfinningu þegar maður gerir sér grein fyrir að á morgun komi nýr dagur. Pistillinn kannski í dýpri kantinum í þetta skiptið, ég hef þurft að gera mikið af mínu besta uppá síðkastið. Löngunin til að gera enn betur er oft til staðar, en þá er mikilvægt að muna eftir að gera sitt besta miðað við aðstæður. Ákvað að deila þessari pælingu með ykkur. Kæru lesendur, mig langar til að óska ykkur gleðilegra páska og vona innilega að þið hafið það sem allra best og gerið ykkar besta í því sem þið takið ykkur fyrir hendur! :)